Skýrsla ráðgjafafyrirtækisins ADMON um öryggi rafrænna auðkenna
Nýverið gaf ráðgjafafyrirtækið ADMON ehf út skýrsluna Mat á fullvissustigi rafrænna auðkenna. Í skýrslunni er lagt mat á mismunandi útfærslu á rafrænum auðkennum og sannvottun í rafrænni þjónustu með hliðsjón af STORK QAA matskerfinu.
Samkvæmt matinu eru rafræn skilríki undir Íslandsrót öruggasta rafræna auðkenningin sem í boði er á Íslandi og ná ein fullvissustigi 4 samkvæmt STORK QAA matskerfinu.